Hann sagði umboð sitt skýrt: \"Umboðið frá þjóðinni er skýrt umboð þess að útrýma spillingu. Við munum gera Grikkland að sterkari stað fyrir hina veiku og varnarlausu, sanngjarnari stað.“ Hann varaði þó við því að erfiðir tímar væru framundan, en stoðir landsins væru nú sterkari. Nú verði allir að leggja hart að sér við að komast í gegnum erfiðleikana.
Syriza mun mynda meirihlutastjórn með Sjálfstæðum Grikkjum sem hlutu tíu þingsæti. Vangelis Meimarakis, leiðtogi Nýs Lýðræðis, sem hlaut 28 prósent atkvæða og 75 þingsæti, óskaði Tsipras til hamingju með kosningasigurinn og hvatti hann til þess að mynda góða ríkisstjórn.
Fjórir aðrir flokkar komu mönnum inn á gríska þingið. Þeirra stærstur varð þjóðernishyggjuflokkurinn Gullin dögun með um sjö prósent atkvæða á bak við sig og 18 þingmenn.