Enn er óljóst með afdrif Hauks Hilmarssonar, sem ANF fréttastofan segir að hafi fallið í stríðsátökum í Sýrlandi í síðustu viku.
Embætti ríkislögreglustjóra reynir nú að afla upplýsinga um Hauk og móðir hans, Eva Hauksdóttir, hefur á bloggsíðu sinni óskað eftir aðstoð almennings við að afla upplýsinga um son sinn.
Í upphaflegri frétt var vísað í yfirlýsingu frá YPG, her sýrlenskra Kúrda, sem Haukur barðist með. Eva segir í færslu á bloggsíðu sinni að enn sé óstaðfest að Haukur sé látinn en það líti þó út fyrir að svo sé raunin.
Utanríkisráðuneytið er í sambandi við ræðismann í Tyrklandi, alþjóðadeild lögreglunnar og fleiri stofnanir og allt er reynt til þess að grafast fyrir um málavöxtu.
Í fréttum í Tyrlandi er Haukur sagður hafa fallið í sprengjuárás tyrkneska hersins í Afrin-héraði þann 24. febrúar. Hann hafi komið til Sýrlands í júlí í fyrra, frá Grikklandi, og meðal annars tekið þátt í bardögum Kúrda gegn hryðjuverkasamtökunum Íslamska ríkisins í Raqqa, að því er kemur fram í frétt á Vísi.is.