Enn leitað við ölfusá

Maðurinn sem ók bíl sínum út í Ölfusá á mánudagskvöld heitir Páll Mar Guðjónsson, búsettur á Selfossi. Leit að Páli hefur ekki enn borið árangur og hófu tugir björgunarsveitamanna úr Árnessýslu og af höfuðborgarsvæðinu leit í og við ána að nýju í morgun. RÚV.is greinir frá.

Páll Mar er fæddur árið 1968, búsettur að Stekkholti 11 á Selfossi og er ókvæntur og barnlaus. Á vef lögreglunnar  kemur fram að aðstandendur hans vilji þakka viðbragðsliði umfangsmikið og óeigingjarnt starf við leitina.