Enn hart deilt við sjómenn

Bryggjan fjallar m.a. um sjómannaverkfallið sem hófst 14. desember sl. Það er engin lausn í sjónmáli, sáttafundur var haldinn í Karphúsinu og skilaði ekki miklu eftir því sem komist var næst um kaffileytið í dag, mánudag, þegar Bryggjan var í húsi ríkissáttasemjara í Höfðaborginni.

Þessi staða hefur gríðarleg áhrif á fiskvinnslurnar, útflutning, markaði erlendis og fleira og fleira.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna í Norð Vesturkjördæmis, þar sem sjávarútvegurinn er stærsta atvinnugreinin fer yfir stöðuna. Lilja Rafney hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir og er einnig sjómannsdóttir að vestan. Það er deilt um kostnaðinn sem er deilt á milli útgerða og sjómanna, þeir hafa verið samningslausir í sex á rog hefur varaformaður sjómannasambandsins sagt uppsafnaða gremju vera í stéttinni.

 Það hefur verið dauflegt á Fiskmörkuðum á Íslandi vegna verkfallsins. Í Reykjavík er markaðurinn úti á Granda. Sölvi fór þangað og hitti þar Ragnar Kristjánsson, umsjónarmann Fiskmarkaðar Suðurnesja

Umsjónarmenn Bryggjunnar eru Linda Blöndal og Sölvi Tryggvason.