Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2018 er 452,0 stig og hækkar um 0,56% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 388,1 stig og hækkar um 0,36% frá febrúar 2018.
Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands, sem birtar voru í morgun, en þar segir jafnframt að eftir að vetrarútsölum hafi lokið hafi verð á fötum og skóm hækkað um 4,4%. Þá hafi kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, reiknuð húsaleiga, hækkar um 1,4%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 0,3%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2018, sem er 452,0 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.925 stig fyrir maí 2018.