Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk handleggi grædda á sig í fyrra, deildi í dag hugljúfri mynd á Facebook og Instagram af sjálfum sér þar sem hann leiðir dótturdóttur sína.
„Það er nauðsynlegt að #afi hafi eitthvað til að halda í,“ segir Guðmundur Felix.
Hann hefur verið mjög opinskár um bataferlið eftir aðgerðina, deilt myndböndum og myndum af sigrum og sorgum.
Og af myndinni að dæma er enn einn sigurinn mættur í hús.