Tom Bossert, aðalráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta í heimavarnarmálefnum, er hættur störfum vegna þrýsting frá nýjum þjóðaröryggisráðgjafa Trumps, John Bolton. Þetta er haft eftir embættismönnum innan Hvíta hússins.
Bossert er sagður hafa verið mjög handgenginn Trump, en heimildir herma að þó svo að Bolton hafi ekki haft neitt persónulegt á móti Bossert, hafi hann viljað koma inn með sitt teymi. Bolton er þriðji þjóðaröryggisráðgjafinn sem gegnir því embætti í 14 mánaða forsetatíð Trumps.
Sarah Sanders, fréttafulltrúi Hvíta hússins, sagði forsetann þakklátan fyrir störf Bosserts í þágu öryggis þjóðarinnar.
Í frétt CNN um málið er bent á að Bolton hafi enn ekki ráðið neitt nýtt fólk í stöður á sviði öryggismála, en samt ýtt að minnsta kosti tveimur háttsettum embættismönnum út nú þegar. Brotthvarf Bosserts þykir bera brátt að og samkvæmt einum viðmælanda CNN í Hvíta húsinu er starfsfólki þar brugðið.