Enn einn aðstoðarmaðurinn til sdg

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur ráðið Matthías Pál Imsland sem aðstoðarmann sinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Matthías færist milli ráðuneyta en hann hefur undanfarið starfað sem aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur velferðarráðherra.

Matthías er 41 árs. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni, BA-prófi frá Háskóla Íslands í stjórnmálafræði og síðar MS-prófi frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Þá hefur hann stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stjórnunarnám við North Park University í Chicago í Bandaríkjunum. 

Einna þekktastur er Matthías fyrir störf sín sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs flugfélagsins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann forstjóri Iceland Express.

Í tilkynningu ráðuneytis segir: „Verkefni Matthíasar í forsætisráðuneytinu verða meðal annars á sviði stefnumörkunar og samræmingar til að styðja við forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar.“

Sigmundur Davíð hefur oft verið í fréttum vegna mikils fjölda aðstoðarrmanna en í tilkynningu ráðuneytis er staðhæft að aðstoðarmenn hans verði með breytingunni nú tveir.

Ekki kemur fram hvers vegna Matthías flyst frá Eygló, flokkssystur Sigmundar.

Í júní í fyrra var tekið saman að launakostnaður aðstoðarmanna ráðherra ríkisstjórnarinnar hafði þá hækkað um tæplega hundrað milljónir króna á þeim tveimur árum sem núverandi ríkisstjórnin hafði setið miðað við kostnað af atsoðarmönnum í stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.