Enn ein skoðanakönnunin sem sýnir rikisstjórnina fallna

Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups sem mældi fylgi flokka í maimánuði fengju ríkisstjórnarflokkarnir ekki nema 30 þingmenn kjörna ef kosið yrði núna. Þetta er í samræmi við flestar skoðanakannanir sem gerðar hafa verið allt þetta ár og lengur. Yfirleitt hefur niðurstaða þeirra verið þannig að núverandi ríkisstjórn hefði ekki nægan þingmannafjölda á bak við sig til að halda velli.

Stjórnin var mynduð með stuðningi 35 þingmanna. Samkvæmt þessari könnun Gallups hefðu ríkisstjórnarflokkarnir tapað 5 þingsætum, Vinstri græn þremur en Framsókn tveimur. Hins vegar bætti Samfylking við sig 4 þingsætum, Viðreisn 3 og Píratar 2. Þessir þrír Evrópusinnuðu flokkar bættu við sig 9 þingmönnum ef marka má þessa nýjustu könnun Gallups.

Flokkur fólksins fengi einungis 3.2% fylgi og kæmi engum þingmanni að en náði 4 mönnum kjörnum síðast. Sósíalistaflokkur Íslands næði heldur ekki manni á þing.

Sjálfstæðisflokkurinn fengi 23.4% greiddra atkvæða og 16 þingmenn kjörna eins og í kosningunum. Samfylking fengi 16.6% og 11 þingmenn. Vinstri græn, Píratar og Viðreisn mælast með svipað fylgi, kringum 11-12%, Miðflokkur fengi 10% atkvæða en Framsókn ræki lestina af þeim flokkum sem kæmu mönnum á þing og fengi 8.5% sem gæfi 6 þingmenn, tveimur færra en í kosningum 2017.