Enn búist við slydduéljum á landinu

Það er vætutíð fram undan og heldur mun kólna með þeim afleiðngum að enn ein slydduélin ganga yfir landið í vikunni, að því er fram kemur í veðurspá Veðurstofu Íslands.

Suðlægar áttir eru ríkjadi, fremur þó hægar, en það þykknar upp og fer að rigna um landið sunnan- og vestanvert, fyrst syðst, en þurrt og bjart norðaustan- og austanlands. Svo snýst hann í vestanátt síðdegis með stöku skúrum vestantil á landinu. Og það kólnar á morgun með dálitlum skúrj eða slydduéli víða um land og verður hitinn 8 til 14 stig að deginum.