Frá júní til áramóta bætast um 520 hótelherbergi við hótelmarkaðinn í Reykjavík. Á sama tíma bætast einnig við 51 hótelíbúð hið minnsta. Einnig er stefnt á opnum 150 herbergja hótels við Leifsstöð í haust. Í heildina eru því um 670 hótelherbergi að bætast við á næstu mánuðum.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Ekki er aðeins um nýbyggingar að ræða því á tveimur af þeim fimm hótelum þar sem staðan var könnuð er verið að bæta við herbergjum. Öll þessi verkefni voru hafin þegar vandræði WOW air urðu opinber.
Að mestu leyti virðast fyrirætlanir vera óbreyttar nema hvað í Skipholti hefur verið hætt við að samnýta tvö hús undir hótel. Þessi uppbygging kostar 12 til 13 milljarða miðað við að hvert hótelherbergi í miðborginni kosti 25 milljónir. Kostnaður vegna hótelíbúðanna er ekki inni í þessari upphæð.
Haft er eftir Jóhannesi Þór Skúlasyni, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, að hann vænti aukinnar eftirspurnar í kjölfar fjölgunar hótelherbergja. Ekki sé útilokað að verð á gistingu lækki vegna aukinnar samkeppni en jafnvægi muni síðan nást. Hann sagði einnig að flugframboð muni hafa mikil áhrif á hversu lengi þetta ástand varir.