Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ferðamálaráðherra vandar Ragnheiði Elínu Árnadóttur, núverandi ráðherra ferðamála ekki kveðjur á fésbók sinni; sérstakur billjans hennar sé að bæta við bákni í ferðamálum. Ragnheiður Elín biður Össur um að hætta gaspri sínu.
Össur skrifar á fés sitt: \"Það er aðdáunarvert hvernig Ragnheiður Elín ferðamálaráðherra nær að brillera viku eftir viku. Það var tær snilld hjá henni að leysa vandamál ferðaþjónustunnar í eitt skipti fyrir öll með því að búa til nýja ríkisstofnun, Stjórnstöð ferðamála. Það þarf sérstakan brilljans til að koma auga á að einfaldasta lausnin var vitaskuld að koma á fót nýrri stofnun við hliðina á Ferðamálastofu, sem Ragnheiður stýrir hvort eð er líka.\"
Og Össur á bágt með að skilja ríkisstofnanablæinn á borgaralega flokknum: \"Það þarf að lágmarki tvær ríkisstofnanir til sinna þessu sama en erfiða verkefni. Ef tvær duga ekki má alltaf stofna þá þriðju. Ég geri að tillögu minni að landsfundurinn verðlauni Ragnheiði Elínu með því að kjósa hana „starfsmann mánaðarins“ þó ekki væri nema fyrir að hafa sýnt í verki hvað Sjálfstæðisflokkurinn á við með slagorðinu Báknið burt,“ skrifar Össur.
Ragnheiður Elín hefur nú svarað Össur á opinberum vettvangi og hnýtir þar í starfsbróður sinn á þingi og segir að hann ætti að kynna sér málin áður en hann byrji að gaspra.