Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson skrifar harðorða grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann sakar réttarkerfið um aðför að sér og eiginkonu sinni Ingibjörgu Pálmadóttur og segir sorglegt að jafnvel Hæstiréttur taki þátt í að spinna lygavef sérstaks saksóknara.
Tilefni skrifanna er að Hæstiréttur ómerkti á miðvikudag sýknu héraðsdóms í svokölluðu Aurum máli þar sem Jón Ásgeir er ákærður sem hlutdeildarmaður í viðskiptum sem áttu sér stað 2008. Jón Ásgeir segir að þar hafi verið um "fullkomlega eðlileg viðskipti" að ræða sem sérstakur saksóknari reyni "að klæða í glæpabúning."
Ómerking Hæstaréttar stafar af því að einn dómenda í héraði reyndist vera bróðir Ólafs Ólafssonar sem átti aðild að málinu. Jón Ásgeir segir í greininni að augljóst sé að sérstakur saksóknari og allt hans starfslið hefðu vel mátt vita um þau tengsl; skýring hans að hann hafi ekki vitað af þeim standist ekki enda hafi einn virtasti dómari landsins sem dæmt hafi málið í héraði sagt frá því að hann hefði látið sérstakan saksóknara vita af tengslunum.
"Það er skelfilegt," skrifar Jón Ásgeir "að upplifa þá tilfinningu að Hæstiréttur haldi hlífisskildi yfir óheiðarlegum embættismanni." Og síðar segir Jón Ásgeir: "Ég hef mátt verja hendur mínar í þrettán ár. Eitt tekur við af öðru. Tilgangurinn virðist vera sá að koma mér í fangelsi hvað sem það kostgar. Gerðar hafa verið ótal húsleitir heima hjá mér og í fyrirtækjum sem tengjast mér. Rótað hefur verið í nærbuxnaskúffu minni, síminn minn hleraður og mikilvægum gögnum haldið undan dómsmálum. Og ekki hefur eiginkona mín verið látin í friði. Hennar símar hafa verið hleraðir og húsleitir gerðar í hennar fyrirtækjum án þess að hún hafi nokkurn tíma á ævinni fengið stöðu sakbornings. Sök hennar virðist vera sú ein að hafa gifst röngum manni."
Og hann segir loks: "En niðurstaða miðvikudagsins er staðreynd. Enn á ný á að drösla mér niður í héraðsdóm."