Almenn samstaða virðist meðal þingmanna um að þeir hafi of lítið að gera þessa dagana. Þetta kom fram í umræðum um fundarstjórn forseta á þingi í dag.
Brynhildur Pétursdóttir, BF, hóf leikinn og gagnrýndi skort á þingmálum. Hún sagði margar þingnefndir hafa of lítið að gera sem setti þingmál í uppnám. „Þetta gengur ekki svona.“ Boðaði Brynhildur að Björt framtíð myndi ekki samþykkja afbrigði á málum sem kæmu inn eftir næstu mánaðamót, því þá yrði frestur liðinn, hún kallar eftir að ráðuneytin drífi sig áfram með málin.
Formaður Samfylkingar, Árni Páll Árnason, tók undir og sagði verkleysi stjórnarinnar vekja furðu.
Heiða kristín Helgadóttir, BF, sagði fullt af fólki á þingi sem væri tilbúið að vinna sína vinnu. Miður væri að mál væru afgreidd á hundavaði. Engum væri til sóma að svo margir þigmenn gerðu ekki neitt.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Samfylkingu, sagði aðeins tvö þingmál komin inn í velferðarnefnd í allan vetur. Fjöldi húnsæðismála biði, hálavarlegt ástand væri á húsnæðismarkaði, ekkert væri komið inn í nefndina. Niðustaða hraðmeðferðar gæti orðið að frumvörp yrðu ólög en ekki lög.
Birgitta Jónsdóttir, Pírötum, sagði afbrigði misnotuð. Farið væri fram á að þingmenn afgreiddu lög blindandi, ekki gengi að láta framkvæmdavaldið ráða öllu við lagasetningu.
Þótti sæta nokkrum tíðindum í þingsal þegar Vigdís Hauksdóttir, Framsóknarflokki, sagðist sammála málflutningi stjórnarandstöðuþingmanna. Búið væri að hræra svo mikið í þingskaparlögum að þingið væri varla starfhæft.
Eygló Harðardóttir velferðarráðherra sagðist taka hvatninguna til sín og sagði að hún myndi reyna að auka fjölda mála á dagskrá.