Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir að Evrópusinnar á Íslandi þurfi ekki að kvíða því að viðræðuslit hafi orðið við Evrópusambandið með bréfinu sem hann sendi forkólfum sambandsins í síðustu viku; Evrópusambandið sjálft hafi sagt að engum dyrum hafi verið lokað. Ef það reynist vilji nýrra stjórnvalda í komandi framtíð að taka upp samningaþráðinn við sambandið að nýju þá sé ekkert því til fyrirstöðu að gera svo.
Þetta kom fram í viðtali við Gunnar Braga í Morgunútgáfu RÚV í dag. Erfitt er að túlka þessi orð Gunnars öðruvísi en svo að af formlegum viðræðuslitum hafi ekki orðið. Það er nokkurn veginn þvert á túlkun Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins á bréfi Gunnars til ESB sem Bjarni telur jafngilda viðræðuslitum.
Gunnar Bragi kemur fyrir fund Utanríkismálanefndar Alþingis í dag til að freista þess að útskýra þýðingu og lagatæknilegu áhrif þessa umtalaða bréfs og mun að því búnu flytja Alþingi skýrslu um Evrópusambandsmálin. Stjórnarandstaðan hefur mjög á það deilt að nefndin hafi ekki verið látin vita af bréfi Gunnars til ESB á sínum tíma og telur það á svig við lög sem kveða á um að öll meiriháttar stefnumarkandi uatnríkismál skuli bera undir nefndina. Í raun sé málatilbúnaðurinn allur aðför að þingræði í landinu og fullveldi Alþingis.