Englar alheimsins með mesta aðsókn

87 leiknar kvikmyndir í fullri lengd voru frumsýndar á Íslandi á árunum 1996-2013. Um helmingur þeirra fékk innan við 10.000 sýningargesti. Tvær myndir fengu yfir 80.000 áhorfendur en sú mynd sem hlaut minnsta aðsókn fékk innan við 50 áhorfendur. 

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Þar má finna yfirlit yfir dreifingu áhorfenda á leiknar íslenskar kvikmyndir í fullri lengd frumsýndum á tímabilinu 1996 til 2013. 

1.475.532 gestir sáu alls 87 íslenskar kvikmyndir á tímabilinu. Helmingur aðsóknarinnar féll í hlut 16 kvikmynda. Kvikmyndin Englar alheimsins í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar trónir á toppnum með mesta aðsókn á árunum 1996 til 2013, en rúmlega 83.000 manns sáu myndina á sínum tíma. Í öðru sæti er kvikmyndin Mýrin í leikstjórn Baltasar Kormáks, en tæplega 82.000 manns sáu myndina. Auk þess á Baltasar Kormákur þrjár aðrar myndir á listanum: Hafið, Brúðgumann og Djúpið. Þriðja aðstóknarhæsta íslenska kvikmyndin á tímabilinu var Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar. 

Athygli vekur að níu kvikmyndanna eru byggðar á vinsælli skáldsögu, leikverki eða sjónvarpsfígúru. Sé litið á þær tíu kvikmyndir sem minnsta aðsókn fengu á tímabilinu er engin sem byggð er á bókmenntaverki eða hefur beina skírskotun í þekktan atburð.