Háskólamenntaðir starfsmenn Fjársýslu ríkisins munu bætast í hóp félaga sinna í BHM sem eru í verkfalli þegar þeir leggja niður störf á miðnætti í kvöld.
Fjársýslan sér um fjármál ríkisins, samræmir reikningsskil ríkisstofnana og sér um greiðslumiðlun fyrir ríkissjóð. Greiðsluseðlar fyrir fyrirfram greidda skatta og gjöld verða ekki sendir út.
Þetta hefur aðallega áhrif á fyrirtæki og verktaka sem greiða skatta sína fyrirfram. Reikningana þarf engu að síður að greiða þó engir séu greiðsluseðlarnir og verða þeir sem það þurfa að leita til Tollstjóra og sýslumanna til að borga skattinn.
Engir samningafundir hafa verið boðaðir hjá ríkissáttasemjara eftir að ríkið sleit kjaraviðræðum við BHM á föstudag.