Ótrúlegur tvískinnungur á íslandi

"Ótrúlegur tvískinnungur – að ekki sé talað um hreina siðblindu – einkennir framgöngu margra málsaðila," segir Páll Magnússon þáttastjórnandi á Hringbraut um breytni ólíkra hagsmunaaðila á Íslandi í dag í nýjum pistli sínum á vefnum: "... ríkisstjórnin hækkar laun lækna um 30%; vinstri meirihlutinn í Reykjavík hækkar laun forstjóra Orkuveitunnar um 90%; formaður Samtaka atvinnulífsins stendur fyrir 20% hækkun á launum flugstjóra; stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins gengur af fundi þar eftir að hafa samþykkt að enginn megi hækka í launum um meira en 3,5%, svo allt fari ekki til fjandans, og á stjórnarfund í Granda þar sem hann samþykkir tífalda þá hækkun fyrir sjálfan sig. Fulltrúar lífeyrissjóða verkalýðsins samþykkja svo 75% launahækkun fyrir sjálfa sig og aðra í stjórn VÍS."


Páll skrifar: "Svo koma ýmsir ofangreindra grafalvarlegir fram í fjölmiðlum og segja að þjóðfélagið fari á annan endann ef lægst launaða fólkið fær meira en 3-4% launahækkun og lágmarkslaun hækki í 300 þúsund krónur á þremur árum."


Hann undrast að þessi staða endurspeglist ekki í pólitíkinni hér á landi, allir flokkarnir á Alþingi eigi það sameiginlegt að hafa glatað öllum lifandi tengslum við verkalýðshreyfinguna. Þetta sé mest áberandi hjá þeim flokkum sem áttu þau mest og best fyrir; Sjálfstæðisflokknum og vinstri flokkunum, sem núna séu þá Samfylking, Vinstri grænir og Björt framtíð. Raunar hafi formaður þeirra síðastnefndu skrifað grein um hugsjónir síns flokks um helgina. Þar hafi ekki veerið minnst stöku orði á yfirstandandi baráttu láglaunaflokks fyrir bættum kjörum, en kvartað yfir nafnalögum og „freka kallinum“. 


"Einmitt," segir Páll og segir svo: "Staðreyndin er sú að láglaunafólk á Íslandi á sér enga almennilega málsvara lengur í flokkunum á Alþingi. Þingmenn vinstri flokkanna rífa sig hása yfir háspennustaurum á hálendinu en gefa sig lítið eða ekkert að kjörum verkafólks."