Enginn vann

Íhaldsflokkurinn hefur tapað þingmeirihlutanum í neðri málstofu breska þingsins. Sérfræðinga í bresku stjórnmálum greinir á um orsakir þess og um það hvert framhaldið verður.

Líklega segir Theresa May af sér í dag sem leiðtogi flokksins og fer á fund Elísabetar drottningar og biðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.

Eða hún situr sem fastast og leitar eftir samstarfi við einn flokk.

 

Lokatölur munu birtar innan tíðar en þetta er staðan núna klukka 07:30.

 

Íhaldsflokkurinn 318 þingsæti - tapaði 13 sætum

Verkamannaflokkurinn 261 þingsæti - vann 29 sæti

Frjálslyndir demókratar 13 þingsæti - vann 5 sæti

Skoski þjóðarflokkurinn 35 þingsæti - tapaði 21 sæti

UKIP 1 þingsæti - óbreytt sæti

Grænir 1 þingsæti - óbreytt sæti

rtá