Krónan hefur aldrei bjargað neinu til frambúðar heldur hefur hún aftur og aftur skapað alvarlegan vanda á 5-10 ára fresti. Ole Anton Bieltveldt skrifar um íslenska gjaldmiðilin í Morgunblaðinu í dag.
Ole segir í grein sinni að hér væru alls konar nýjir sviptivindar að myndast eins og þeir sem Ole Anton telur sig hafa séð og hefur varað við vikum og mánuðum saman.
Það þrengir að sjávarútvegi sem fær nú miklu lægra verð fyrir sínar afurðir en áður var. Þetta er sökum krónu sem er yfirkeyrð segir Ole Anton.
Þetta er afkvæmi yfirkeyrðra vaxta og aðrir útflutningsatvinnuvegir svo og ferðaþjónustan eru að komast í svipuð mál og sjávarútvegurinn.
Beint og óbeint stafar þetta allt af handónýtri krónu bætir Ole Anton við.
Við erum 330 þúsund manns. Hvernig eigum við að halda úti sjálfstæðum og stöðugum gjaldmiðli?
Þetta er í raun fásinna. Það má líkja því við að það væru þrjátíu gjaldmiðlar í Danmörku.
Eða að Bergen í Nogegi hefði eigin gjaldmiðil. Meira að segja Þjóðverjar með sitt ofur sterka þýska mark sáu sér hag í að taka upp evruna.
Hvað eru menn eiginlega að tala um? Vill einhver annað hrun?