Arður veiðiréttareigenda af lax- og silungsveiði er allt að 1,7 milljarða króna og efnahagslega áhrif stangveiða eru miklu hærri.
Stangveiðar skila hugsanlega 17 milljörðum króna í þjóðarbúið. Alls njóta fimmtán hundruð einstaklingar og fyrirtæki arðs af lax- og silungsveiðihlunindum.
Dreifing þessara hlundina er nokkuð ójöfn um landið. Langmesti arðurinn er af veiðum á Vestulandi; ekki síst í Borgarfirði. Þar eru margar gjöfulustu laxveiðiár landsins.
\"Þessar tekjur hafa verið í langan tíma ákveðið hryggjarstykki í byggðinni\" hefur Morgunblaðið eftir Jóni Helga Björnssyni formanni Landssambands veiðifélaga. Það styrkir búsetu á landsbyggðinni að bændur og búalið hafa aðgang að þessum tekjum.
Spyrja má hvaða sjónamið verða að lokum ofan á á. Sjónarmið stangveiðimanna og veiðiréttaeigenda eða sjónarmið hagsmunaðailda í sjávarútvegi sem stunda líka laxaeldi.