\"Þetta eru vondar fréttir en ég bind vonir við að forsvarsmenn HB Granda og Akrenesbæjar eru að tala saman segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra í viðtali við Fréttablaðið.
Þorgerður Katrín segir í viðtalinu að eðlileg hagræðing innan sjávarútvegsins sé mjög mikilvæg og hafi skipt máli fyrir fjárfestingar í greininni.
En Þorgerður Katrín segir að hagræðing í sjávarútvegi verður að fara saman við kröfuna um byggðafestu og atvinnuöryggi.
Slíkt er ekki gert með því að flytja störfin til Reykjavíkur. Það er ekki samhengi þaran á milli segir Þorgerður Katrín.
Hún bætir við að málið sé angi af öðru stærra máli sem sé hennar stærsta viðfangsefni sem sjávarútvegsráðherra.
Það mál er sátt um gjaldtöku af auðlindinni segir Þorgerður Katrín og bætir því við þetta mál HB Granda á Akranesi ýti undir að gjaldtakan verði tekin föstum tökum núna.
Á meðan samfélagið telur að sjávarútvegurinn hafi ekki borgað sanngjarna greiðslu fyrir sjávarauðlindin þá er þolinmæðin minni gagnvart svona stórtækum aðgerðum segir Þorgerður Katrín Gunnarssdóttir sjávarútvegsráðherra.
rtá
Nánar www.visir.is