Allir fái eigin gælunöfn til afnota

Réttarkerfið riðar til falls ef ekki verður brugðist hart við og mannanafnanefnd falið það margslungna verkefni að útrýma samstæðum og líkindum í flokki gælunafna.  Óli er ekki sami og Óli, og þörf er á að koma skikki á málaflokkinn svo ekki stefni í óefni.


Þetta skrifar Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson í nýjum pistli hér á hringbraut.is.  Þar skýrir hann augljósa nauðsyn þess að útvíkka erindi mannanafnanefndar. 


„Það er greinilega ekki nóg að nefndin leyfi og/eða banni nöfn. Hún þarf líka að huga að gælunöfnum. Það er til að mynda ótækt að allur sá fjöldi manna sem ber nafnið Sigurður sé líka kallaður því sama, Siggi. Guðrún er oftar en ekki, Gunna - og það bara gengur ekki upp! Og hver kannast ekki við Margréti sem kölluð er Magga? Þessu þarf að breyta.


Ég legg til að hverjum og einum einstaklingi sem ber nafn (sem eru margir) verði af mannanafnanefnd úthlutað gælunafni og verði sú regla viðhöfð að ekki séu nein tvö gælunöfn eins, né skarist þau á nokkurn þann hátt að valdið geti misskilningi. Þannig geta menn sem heita Þórður haft svo fjölbreytt gælunöfn sem: Þeb, Nok, Rúlbúbb, Emjólí, 933-Svarsúlík, Núsi, 29orbílú3. Ingibjörg getur kallast Bja, Ingló9, Lumer, Sardína - og svo mætti lengi telja, nöfn og gælunöfn.“