Blekking

Ólafur Ólafsson kallar efni skýrslu rannsóknanefndar Alþingis \"atriði sem ekki skipta máli\" í orðsendingu sem Ólafur sendi frá sér í gær.

Þessi orðsending  Ólafs vekur um þessa þanka leiðarahöfundar Morgunblaðsins í dag.  \"Það er merkilegt að ráðist skyldi í að vefa svo flókinn vef blekkinga ef hann skiptir engu máli. Blekking sem engu máli skiptir var svo viðkvæmt mál að aðrir fjárfestar í S-hópnum máttu eins og fram kemur í skýrslunni ekkert af henni vita. Þeir voru einnig dregnir á asnaeyrunum eins og ríkisstjórnin og almenningur.\"

Ólafur segir einnig að ríkið hafi ekki skaðast af blekkingarleik um. En hvað með alla hluthafa í Kaupþingi hf? Ekki nutu þeir þess áhættuleysis sem Ólafur Ólafsson tryggði með blekking inni. Þetta er að finna í leiðara Morgunblaðsins í dag. 

Nánar  www.mbl.is