Toppur borgarísjakans

Augljóst mynstur er í fléttum  Ólafs Ólafssonar þegar einkavæðing Búnaðarbanka Íslands hf. er skoðuð segir Björn Jón Bragason.

Í tímariti Sögufêlagsins frá árinu 2011 skrifaði Björn Jón grein um sölu bankans.  Ári síðar skrifaði Björn Jón grein í tímaritið Þjóðmál. Greinin var um falið eignarhald Ólafs Olafssonar í kjölfar Al-Thani ákærunnar.

Í viðtali í dag í Fréttablaðinu segir Björn Jón: \"Mér fannst þegar ég var að skrifa um þetta á sínum tíma ég sjá ákveðið mynstur. Það var augljóst sem hefur svo komið á daginn.\"

Björn Jón Bragason  er sagnfræðingur og lögfræðingur og er höfundur fræðigreina um markverða atburði í nútímasögu Íslands. Hann skrifaði auk þess merka bók um Hafskipsmálið.

Björn Jón er í hópi þeirra sem hafa sögu að segja um Ólaf Ólafsson. Þær sögur eru ekki byggðar á getgátum heldur á heimildar vinnu og rannsóknum.

Nú er þess beðið að Ólafur Ólafsson annað hvort þegi þunnu hljóði eða segi frá sinni hlið á málinu á trúverðugan máta en fari ekki undan í flæmingi.

Þá er þess að vænta að talsmenn Framsóknaflokksins leggi orð í belg. Einkum þeir sem gegndu trúnaðarstöðum fyrir flokkinn á þessum árum. Menn eins og Jón Sigurðsson fyrrverandi formaður flokksins. 

Rétt er að minna á að þegar Rannsóknarnefnd Alþingis vildi fá vitnisburð hjá ákveðnum mönnum þá neitudu þeir menn að mæta í skýrslutöku. Kom til dómsmála.

 

Nánar www.frettabladid.is og www.mbl.is