Hafliði Helgason er tekinn við starfi framkvæmdastjóra Hringbrautar sem rekur sjónvarpsstöð og vefmiðil. Hann tekur við starfinu af Guðmundi Erni Jóhannssyni sem verður áfram sjónvarpsstjóri Hringbrautar og jafnframt sölu-og markaðsstjóri.
Hafliði er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur víðtæka reynslu og menntun á sviði fjölmiðla og almannatengsla.