Blik úr bernsku: árni johnsen

Árni segir frá því þegar hann ætlaði að flytja að heiman í fyrsta skipti, fjögurra ára, en afi stoppaði það. Hann segir frá leikvangi æskuáranna, blómasölukonunni móður sinni, gríska föðurnum í ameríska hernum sem eitt og sér réttlætti veru bandaríska hersins á Íslandi, og orkunni sem býr í birtunni yfir Eyjum.

Við fáum einnig að heyra af fyrsta og eina fylleríi Árna og ýmsu því sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða, þar á meðal úteyjarnar þar sem Helgi dynkur kemur við sögu.