Í Bretlandi tíðkast það ekki að gefa bækur út fyrir jólin. Jólabókaflóð er ekki til þar í landi segir Ragnar Jónasson rithöfundur í ,,Fólki með Sirrý.\" En útgefandi í Bretlandi vildi heiðra íslensku jólabókahefðina með því að velja aðfangadag sem útgáfudag nýrrar bókar ,,Rof\" eftir Ragnar Jónasson. Dagsetningin var valin til þess að bretar geti nú hlaðið niður nýrri rafbók á aðfangadag og lesið um jólin að hætti bókaþjóðarinnar í norðri. Ragnar segir að bækur séu almennt ekki gefnar út eða auglýstar sem jólagjafir þar í landi og því er ánægjulegt að litið er til Íslands sem fyrirmyndar bókaþjóðar. Ragnar og Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur eru gestir Sirrýjar á Hringbraut miðvikudagskvöld kl. 20:30 og ræða nýjustu bækur sínar og tvöfalt líf sitt. Þátturinn er endursýndur um helgina.