Á Íslandi eru gerðar 5-600 tilraunir til sjálfsvígs á ári. 40-50 manns taka sitt eigið líf samkvæmt opinberum tölum. Samtökin Pieta Ísland undirbúa opnun húss fyrir fólk sem þjáist vegna sjálfsvígsvandans. 21. desember munu þau standa fyrir göngu úr mykri í ljósið þar sem allir sem láta sig þessi mál varða geta komið í Sundahöfn kl. 21 og gengið að Skarflakletti og í vita sem er tákn um von. Auður Axelsdóttir, Benedikt Þór Guðmundsson og Sigríður Ásta Eyþórsdóttir koma í ,,Fólk með Sirrý\" í kvöld, miðvikudag kl. 20:30 og ræða gönguna, sorgina, vonina og hvaða úrræði Pieta Ísland eru að fara að bjóða upp á. Endursýnt á Hringbraut um helgina. Hér má sjá brot úr þættinum: