Gleypa flóttamenn íslenskt samfélag?

,,Skila allir peningar sér inn í skattkerfið okkar?\" spyr Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi í ,,Fólki með Sirrý\" á Hringbraut í kvöld kl. 20:30. Hún vill að allir peningar skili sér inn í skattkerfið því við ættum alveg að hafa efni á því að sinna vel bæði velferðarkerfinu fyrir Íslendinga og taka vel á móti flóttafólki sem flýr hingað úr skelfilegum aðstæðum. Kristín talar tæpitungulaust í hressilegu spjalli hjá Sirrý og svarar ýmsum viðkvæmum spurningum um flóttamenn. Hún hefur engar áhyggjur af því að flóttamenn komi hingað með aðra menningu og aðra siði og hvetur okkur til að rifja upp hvernig Íslendingar þjappa sér saman erlendis og hvernig við viljum láta koma fram við okkur í öðrum löndum.

Kristín segir einnig frá starfi sínu hjá RKÍ og frá þeim tíma þegar hún, fjögurra barna móðir og framkvæmdastjóri í viðskiptalífinu, tók að sér sjálfboðaliðastarf fyrir heimilislausar konur í Konukoti. Þátturinn er á dagskrá miðvikudag kl. 20:30 og endurtekinn daginn eftir og um helgina og svo á hringbraut.is 

Hér má sjá brot úr þættinum.