Náttúrupassinn eina færa leiðin

Náttúrupassaleiðin, með minniháttar breytingum, er eina færa leiðin sem framtíðarlausn á fjármögnun til uppbyggingar ferðamálastaða að mati Valgerðar Sverrisdóttur fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins.


Þetta kemur fram í nýjasta pistli Valgerðar hér á hringbraut.is um Ísland sem ferðamannaland. Í pistli sínum segir Valgerður það einkum þrennt sem þurfi að koma til að ferðamannaiðnaðurinn á Íslandi nái að blómstra. Í fyrsta lagi verði að finna framtíðarlausn á fjármögnun á rekstri fjölmennra ferðamannastaða. Í öðru lagi verði að fjölga stöðum á Íslandi sem bjóða upp á reglulegt beint flug til landsins, og í þriðja lagi verði að mennta ungt fólk í þeim starfsgreinum sem tengjast greininni.


Í pistli sínum færir Valgerður rök fyrir því af hverju hún er þeirrar skoðunar að náttúrupassaleiðin, með minniháttar breytingum af hálfu þingsins, sé besti kosturinn í stöðunni: „Náttúrupassi iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ekki vakið sérstaka hrifningu hjá landsmönnum. Menn hafa allt á hornum sér og setja gjarnan í tilfinningagírinn. Talað er um að það gangi ekki að fólk geti ekki heimsótt Þingvelli án þess að þurfa að sýna passa og þar fram eftir götunum. Ég skal viðurkenna að ég hef ekki fylgst með allri þessari umræðu en ég kannast alveg við þessar klisjur sem settar eru fram. Það er auðvelt að gagnrýna en erfiðara að benda á færa leið sem komið gæti í staðinn. Vera okkar í EES gerir það að verkum að ekki er hægt að mismuna Evrópubúum og þar með er ekki auðvelt að skattleggja bara útlendinga eins og margir hefðu helst viljað. Ef að leggja á gjald á flugfarþega getum við ekki undanskilið innanlandsflugið sem flestum finnst mjög dýrt fyrir. Gistináttagjald var lækkað af hálfu núverandi ríkisstjórnar þannig að varla fer hún í að hækka það aftur núna.“


Valgerður fagnar því að að forsætisráðherra hafi skipað nefnd sem hefur það hlutverk að huga að millilandaflugi á öðrum flugvöllum landsins svo sem á Akureyri og Egilsstöðum.