Forystukonunum var hafnað

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis þurfa að þola harðan dóm eigin flokksfélaga. Í prófkjöri Sjálfstæðsflokksins náði Ragnheiður Elín aðeins fjórða sæti, var í fyrsta sæti síðast, og Unnur Brá hafnaði í fimmta sæti nú, var í öðru sæti síðast.

Páll Magnússon sigraði, Ásmundur Friðriksson varð annar og Vilhjálmur Árnason þriðji.

Þessi var staðan þegar búið var að telja eitt þúsund atkvæði og við lestur talnanna er ólíklegt að röðin breytist.

Hvergi er getið um stöðu Árna Johnsen.

Fyrr í kvöld voru úrslit Sjálfstæðisflokksins í Kraganum birt. Þar voru fjórir karlar í fjórum efstu sætunum.