Spilling verður kjósendum ofarlega í huga

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar er í viðtali á Hringbraut í kvöld en hann sækist eftir 1.sætinu í Reykjavík og þá að leiða annan hvorn listann, í suður eða norður hlutanum. Hann ræðir á Hringbraut í kvöld komandi prófkjör um helgina og helstu málefni ásamt Karenu Elísabetu Halldórsdóttur, frambjóðanda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. 

Helgi segir að stóru málin í kosningunum verði heilbrigðismál, húsnæðismál og málefni aldraðra og öryrkja og ekki síst muni siðferðismál í pólitík verða stórt í umræðunni fyrir kosningar og vísaði þar t.d. í Panamaskjölin og bankabónusa. Helgi segir að “spillingarmál” í stjórnmálum verði að hans mati kjósendum ofarlega í huga.

Ásamt Helga sækjast þessi eftir að leiða lista í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu: Össur Skarphéðinsson, þingmaður, Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sem er sömuleiðis situr á þingi.