Þjóðbrautarþáttur kvöldsins verður helgaður einu máli, sjávarútvegi. Aðalgestur þáttarins er Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Fréttatímans. Fréttaskýring verður um sjávarútveginn og að auki verða fréttaviðtöl sem Linda Blöndal tók í Þorlákshöfn í dag.
Það er ekkert nýttt að mikill hagnaður hafi fylgt sjávarútvegi, það sem hefur breyst að hagnaðurinn rennur nú til mjög fárra. Það er annað en áður var.
Ítarlega verður fjallað um þetta í þætti kvöldsins, skýringarmyndir verða sýndar með umfjölluninni.
Þjóðbraut er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.