Hægt er að fimmfalda D-vítamíninnihald sveppa séu þeir lýstir með geislum frá sólinni, að sögn Georgs Ottóssonar garðyrkjubónda og eiganda Flúðasveppa.
Þetta kom fram í þættinum Atvinnulífið sem sýnt var á Hringbraut í gærkvöldi.
Georg Ottósson garðyrkjubóndi var gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar í þættinum. Georg hefur rekið Flúðasveppi í 10 ár og auk þess starfað sem garðyrkjubóndi á fjórða áratug.
Georg segir gríðarlega mikilvægt að nota umhverfisvæna gróðurmold, og ekki sé sama hvaðan hún erkeypt og í hvað hún er notuð.
Flúðasveppir framleiða einnig lífrænan massaog selja auk þess Hekluvikur en allar þessar vörutegundir eru hollar jarðveginum og hjálpa plöntum að vaxa með betri hætti en ella.
Hægt að horfa á þáttinn með því að smella hér: