Talsmaður wikileaks á hringbraut

Kristinn Hrafnsson rannsóknarblaðamaður og talsmaður Wikileaks verður í hópi fjölmargra góðra gesta í beinni sjónvarpsútsendingu Hringbrautar í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21. Kristinn mun ræða lekann mikla, 11 milljónir skjala um skattaskjól, Panamaskjölin, sem m.a. hafa leitt til afsagnar forsætisráðherra Íslendinga og mikilvægi sjálfstæðrar blaðamennsku.

Kristinn verður í hópi margra góðra gesta, sérfræðinga, stjórnmálamanna og fulltrúa almennings sem fá sitt rými í þættinum auk þess sem rætt verður við erlenda ferðamenn um þeirra upplifun af íslenska spillingarmálinu sem tengist skattaskjólum. Bein útsending þjóðmálaútsendingar Hringbrautar í kvöld, Guð blessi ísland... aftur, verður klukkustundar löng. Farið verður í máli og myndum yfir stórtíðindi dagsins, fall forsætisráðherra, atganginn á Bessastöðum í hádeginu, eftirminnilegasta augnablikið á Alþingi í dag og viðbrögð meirihlutans og minnihlutans á þingi sem og horfurnar fram undan.

Þátturinn er í umsjá Ólafs Arnarsonar, Ólafs Ísleifssonar og Björns Þorlákssonar og verður endursýndur kl. 23.