Ford frá 1915 er bíll kvöldsins

Kíkt í skúrinn verður á sjónvarpsdagskrá Hringbrautar í kvöld. Í þættinum verður skoðaður Ford T 1915 í eigu Braga Guðmundssonar. Hann gerði bílinn upp frá grunni og handsmíðaði frá grunni. \"Þessi glæsilegi bíll er einn af elstu bílum á landinu,\" segir Jói Bacjman, umsjónarmaður þáttarins.
Um er að ræða 20 hestafla high og low orginal flatheddmotor sem skilar honum að hámarki 72 km hraða. Það eru aðeins mótorbremsur í bílnum en ekki fótbremsur eins og við þekkjum í dag og hann skartar glæsilegum tréfelgum.

\"Flott uppgerð hjá manni sem er matreiðslumeistari að mennt og langaði að gera upp eitthvað skemmtilegt enda handverkið og öll smáatriði flott og vekur bíllinn mikla athygli þegar hann er á ferðinni. Þau hjónin nota Fordinn oft sem golfbíl þegar þau skella sér í golf saman enda tilvalinn í það, tveggja manna með palli. Það voru yfir 15 milljónir svona bíla framleiddir á sínum tíma í heiminum, en þessi er sá eini sem til er með þessu húsi,\" segir Jói.

Þá verður í þættinum áfram fylgst með breytingum á Bens sprinter sem fjallað var um í fyrsta þætti en þá var talað við Rallý Palla.

\"Nú er komið að því að sjá hann hjá Jeppaþjónustunni Breytir sem hafa breytt bílum fyrir ferðaskrifstofur, fyrirtæki og einstaklinga í gegnum árin. Við ræðum þar við Aron Árnason eiganda fyrirtækisins og forvitnumst hvernig gengur með Sprinterinn því bráðlega fær eigandinn bílinn afhentan,\" segir Jói.