Styrmir: eðlilega grípur um sig reiði

\"Nú þegar 48 ára samfelldum og nánum samskiptum við heilbrigðiskerfið er lokið finn ég hjá mér þörf til þess að þakka starfsmönnum þeirra stofnana, sem hlut eiga að máli, fyrir þau samskipti. Þau hafa með fáum undantekningum verið einstök.\"

Með þessum orðum byrjar Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins grein sína í blaðinu um helgina, en þar hefur hann haldið úti dálkinum Af innlendum vettvangi um margra missera skeið. Skrif hans í dag eru í tilefni af því að eiginkona hans, Sigrún Finnbogadóttir, féll frá á dögunum, en hún glímdi við geðröskun meginhluta ævi sinnar. Styrmir hefur oftsinnis deilt reynslu fjölskyldu sinnar af geðsjúkdómum í ræðu og riti, meðal annars skrifað eftirminnilega bók um hana.

Nú þegar eiginkonan hefur kvatt horfir Styrmir til baka og minnist alls tímans á þeim griðastað sem geðdeild Borgarspítalans í Fossvogi og síðar Landspítalans var fyrir Sigrúnu og fjölskylduna alla: \"Þeim sem fylgjast með störfum starfsmanna á einstökum deildum Landspítalans verður ljóst að álagið á þetta fólk er gífurlegt,\" skrifar Styrmir og heldur áfram: \"Á dögunum hafði ég orð á því við hjúkrunarfræðing hvernig í ósköpunum hún gæti sinnt þessu starfi. Hún horfði á mig og sagði: Vegna þess að þegar ég fer heim til mín á kvöldin finnst mér ég hafa gert eitthvað sem skiptir máli.\"

Hann segir mikilvægt að fjölga starfsfólki á Landspítala og efla þjónustuna þar og fagnar í því ljósi undirskriftasöfnun dr. Kára Stefánssonar. Hann kveðst skilja vel þá undiröldu sem að baki hennar búi; stórir hópar fólks séu þar að fá útrás fyrir tilfinningar sínar, meðal annars aðstandendur sjúklinga eins og hann sem skynja og sjá hvað er að gerast innan veggja spítalans.

\"Og af sömu tilfinningalegu ástæðum tekur þessi hópur fólks það óstinnt upp, þegar skætingur einkennir viðbrögð einstakra þingmanna og ráðamanna við þeirri undirskriftasöfnun,\" skrifar Styrmir af þunga í þessari persónulegu og meitluðu grein sinni í helgarblaði Morgunblaðsins.

Hann bendir á að ef fólki finnst að sjúkir aðstandendur þeirra fái ekki viðunandi þjónustu grípi um sig reiði. \"Og það er reiði þeirrar gerðar að ég held, að stjórnmálamenn eiga ekki að kalla hana yfir sig.\"

Styrmir segir heilbrigðiskerfið vera eina mikilvægustu spegilmynd hvers samfélags. Ef hún sé ekki í lagi sé það til marks um alvarlega meinsemd í samfélagsgerð landsins: \"Hér þarf stórátak til,\" skrifar hann og botnar grein sína þessum sterku orðum. \"Þetta mál snýst ekki um einstaka flokka. Það snýst ekki um stjórn og stjórnarandstöðu. Undirskriftasöfnun dr. Kára Stefánssonar er ekki beint gegn einum eða neinum. Hún er í þágu fólks sem þjáist.\"