Forkólfar Reykjavíkurborgar fá það heldur betur óþvegið á samfélagsmiðlunum þessa dagana, en þeir liggja undir ámæli fyrir að halda götum og strætum ekkert sérstaklega vel við.
Götur borgarinnar þykja jafnvel áþekkar yfirborði tunglsins og nálægra pláneta eins og myndin sem fylgir þessum orðum ber með sér, en sá er munurinn að gígunum fjölgar ört í Reykjavík eftir því sem hækkandi sól bræðir meira af snjó af yfirborði jarðar.
Forkólfar Reykjavíkurborgar hafa sagt opinberlega að götur borgarinnar komi ekki verr undan vetri í ár en á síðasta ári, en víst er að mörgum borgarbúum er ekki skemmt vegna ástands gatnakerfisins - og er nærtækast að minnast þar fregna úr herbúðum tryggingafélaganna sem sjaldan eða aldrei hafa þurft að greiða álíka háar bætur vegna skemmda á bílum af völdum hvassra horna í götóttu malbikinu sem hefur látið undan frosthörkum og umhleypingum síðustu mánaða.
En altént, þessi athyglisverða myndaröð fer nú eins og eldur í sinu um samfélagsmiðlana.