Segir ráðherra einræðishneigðan tudda

Sá flugbeitti þjóðmálarýnir sem Jónas Kristjánsson er lætur Sigurð Inga Jóhannsson, landbúnaðarráðherra heldur betur heyra það í nýjustu færslu sinni á jonas.is og líkir honum við einræðisherra.

\"Enn tuddast Sigurður Ingi einræðisherra eins og í upphafi ferilsins,\" skrifar Jónas og minnir þar á þegar ráðherrann flutti forstjóra Hafró norður, þótt allir aðrir starfsmenn Hafró sætu eftir sunnan heiða.

\"Nú gerir hann tíu ára búvörusamning í leyni án aðkomu alþingis,\" bætir Jónas við og bendir á að samningarnir eigi lögum samkvæmt að vera til eins árs og staðfestir af Alþingi.

\"Honum þykir ekki þorandi að dagsljós skíni á 130 milljarða. Bindur hendur komandi þingmeirihluta í tvö kjörtímabil til viðbótar. Sennilega er það stjórnarskrárbrot, sem verður afturkallað eftir næstu kosningar,\" skrifar Jónas í dag og og kvartan sáran undan einræðishneigð ráðherrans.