Höfum fengið mikla aðstoð frá íbúum

„Við erum ágætlega í stakk búin til að taka á móti fólkinu. Við höfum haft ágætis tíma til að undirbúa okkar og fengið mikla og góða aðstoð frá íbúum,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri í samtali við Hringbraut.

Í dag rennur stóri dagurinn upp og fjórar fjölskyldur koma til landsins og fara svo norður. Tvær aðrar sýlenskar fjölskyldur verða með í för og fá skjól á höfuðborgarsvæðinu. Stefnt er að því að sögn bæjarstjórans á Akureyri að fólkið sem fær ný heimili á Akureyri komi norður annað kvöld.

„Starfsfólk okkar og Rauða krossins hefur staðið sig mjög vel í að standsetja húsnæðin sem bíða eftir þeim tilbúin þegar þau koma,“ segir Eiríkur Björn.

Spurður um skýringar á því hvers  vegna nokkrar fjölskyldur flóttafólks vildu ekki koma til landsins, segist Eiríkur Björn ekki hafa fengið aðrar skýringar en þær sem hafi komið fram í fjölmiðlum. Óupplýst er með ákvarðanir þriggja fjölskyldna en ein fjölskyldan frestar för vegna óléttu.

Samkvæmt heimildum Hringbrautar verður efnt til sérstakrar móttöku fyrir sýrlenska flóttafólkið á Akureyri á morgun miðvikudag kl. 17:00 í húsi Rauða krossins. Móttakan verður lokuð.

Í viðtali við Hringbraut fyrir skemmstu sagði doktor Nicole Dubus, bandarískur félagsfræðingur og félagsráðgjafi og erlendur sérfræðingur í móttöku flóttafólks að viðbúið væri að mikil sorg yrði í hjörtum flóttafólksins við komu hingað og mikilvægt væri að reyna ekki að snúa fólkinu of hratt til íslenskra siða.