Aldraðir: auðveldara að fá vinnu

Allt bendir til þess að eldra fólk eigi auðveldara með að fá atvinnu og breyta til en verið hefur undanfarin ár. Margt kemur til: Aukin eftirspurn eftir vinnuafli, en líka hugarfarsbreyting sem hægt og sígandi er að verða gagnvart því að ráða eldra fólk í vinnu.
 
Þetta var meginniðurstaða Katrínar Óladóttur frá Hagvangi og Karls Sigurðssonar frá Vinnumálastofnun í þættinum Okkar fólk sem var á dagskrá Hringbrautar í gærkvöld, en þáttinn má sjá í heild sinni hér á vef stöðvarinnar. 
 
Þar kom framt að jafnframt þurfi að grípa til ráðstafana sem lengi hafa verið til umræðu, - sveigjanleg starfslok og fjölbreyttari vinnutími og lagabreytingar sem fella úr gildi margs konar aldurstakmörk, eins og 67 ára lífeyristöku og starfslok opinberra starfsmanna við 70 ára aldur.