Engin framlög og alþjóðalög brotin

Öll alþjóðleg mannúðarlög voru brotin í árásum Ísraelshers á Gaza síðastliðið sumar að mati sérfræðinga Rauða krossins. Uppbygging á svæðinu er ekki hafin því nánast engin framlög hafa borist frá alþjóðasamfélaginu. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Heimsljóss hér á Hringbraut.


Nína Helgadóttir verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi segir sérfræðing Alþjóðaráðs Rauða krossins í mannúðarlögum hafa staðfest það við hana að öll alþjóðleg lög hafi verið brotin í árásum Ísraela. Hún segir ástandið á Gaza ólýsanlegt og að það sé með ólíkindum að slík eyðilegging stafi af mannavöldum.  


Engin uppbygging hefur átt sér stað á Gaza frá því að hernaðaraðgerðum lauk í haust.  Íbúar Gaza búa við sívaxandi fátækt, innviðum var nánast eytt og fjölmargar fjölskyldur hafa misst lífsviðurværi sitt og fyrirvinnu.


Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, segir það hafa komið fram á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um málefni Palestínu í síðustu viku að einungis 5% af þeim framlögum sem ríki heims lofuðu til uppbyggingar á Gaza hafi skilað sér.  Ekki eitt einasta hús hafi verið byggt á því hálfa ári sem nú er liðið frá árásunum.  Nína og Sveinn voru gestir í Heimsljósi ásamt Grétu Gunnarsdóttur sendiherra.