Áfengis- og fíknivandi jókst um mitt þetta ár eftir að hafa dregist saman eftir hrun.
Þetta segir Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi, sjúkrahúsi SÁÁ. Ríkisútvarpið segir frá. Hugsanlegt sé að vandinn vaxi með auknum peningum og umsvifum. Fullt er á öllum meðferðarstöðvum SÁÁ yfir jólin.
„Og síðan í hruninu þá dró nú svona úr algenginu. Það varð ekki eins þungt sem betur fór vegna þess að flestir urðu nú að draga aðeins saman í þjónustunni. En svo er margt sem bendir til þess svona um mitt ár núna hafi aftur svona farið að svona aðeins að þyngjast. Og hefur fundist haustið svona, það eru margir á biðlista. Kannski kemur aukinn vandi með auknum peningum og umsvifum. Það er nú bara þannig,“ segir yfirlæknirinn í samtali við Rúv.
Þórarinn segir jólin erfið þeim sem glíma við áfengissýki og aðra fíknsjúkdóma. Jólin séu aðalfjölskylduhátíð ársins. Þeir sem séu í vanda hugsi mest til fjölskyldunnar á þessum tíma og margir komi einmitt í meðferð vegna fjölskyldunnar.
„En svo eru aðrir sem eru aldir upp við jól þar sem voru miklar væntingar og vonbrigði vegna óreglu eða einhverra vandamála. Og þeir fá oft kvíða fyrir jólin og þeim líður ekki endilega alltaf vel um jólahátíðina,“ hefur Rúv eftir Þórarni.