Áhyggjur af flugeldum úr sögunni

 Áhyggjur þær sem Dr Nicole Dubus, sérfræðingur í móttöku flóttamanna reifaði í viðtali við Kvikuna á Hringbraut, um að menningarlegur árekstur sýrlenskra súnnímúslina við kristilegu hátíðina jólin hér á landi, en þó ekki síður sprengignýinn á gamlárskvöld, eru úr sögunni.

Ekkert verður af komu flóttamannanna hingað fyrr en að líkindum um miðjan janúar.

Velferðaráðuneytið tilkynnti í gær að komu flóttamanna til þriggja íslenskra sveitarfélaga seinkaði fram í miðjan janúar. Kerfistök, vegabréfamál, er sögð skýra seinkunina.

Fátt er svo með öllu illt í þeim efnum því Nicole Dubus, einn þekktasti sérfræðingur heims í móttöku flóttamanna, sagði í viðtalinu á Hringbraut:

„Jú, tímasetningin á komu flóttafólksins hingað norður er mjög óheppileg. Það hefði verið mun betra að koma hingað að sumri þegar dagur er langur. Nú skín sólin í Sýrlandi 10,5 klukkustundir á dag svo það sé nefnt til samanburðar, en það er ekki eins og að við tímasetninguna verði ráðið. En það er alveg rétt að fólkið gæti átt mjög erfitt í látunum á gamlárskvöld. Flóttafólkið kann að tengja flugeldana við ógnir sem það hefur upplifað.

Svo er hann líka fyrir hendi þessi menningarmunur, að koma hingað rétt fyrir kristnu hátíðina jólin, þar sem langflestir hér eru kristnir og menningin gengur út á það, mjög mikla kristna trúaráherslu. Það gætu orðið mjög mikil viðbrigði.“

Flugeldar og sprengihvellir geta hæglega ýft upp áföll hjá stríðshrjáðum og tengt þá við ofbeldi og missi.

Til stóð að flóttamennirnir kæmu til landsins 21. desember á stysta degi ársins. Innan kerfisins höfðu heyrst gagnrýnisraddir UM það,  enda fólkið vant mun meiri birtu og hlýindum. Því hefur verið spurt hvort það kunni að koma flóttafólkinu vel að dráttur verði á komu þessu.