Farþegi um borð í flugvél á vegum Primera, vél sem átti að lenda klukkan 20.15 á Akureyrarflugvelli í gærkvöld en hætti við vegna veðurs, segir að hægt hefði verið að fljúga vélinni aftur norður að lokinni lendingu í Keflavík. Þá hafi aftur verið komið gott skyggni.
Gylfi Pálsson, farþegi í Primera vélinni, segir æðruleysi hafa einkennt fas farþega um borð þrátt fyrir skakkaföllin. Óneitanlega hafi það þó haft áhrif á upplifunina að þurfa að fara síðasta spottann með rútu um nótt frá Keflavík. Meginástæðan fyrir kaupum á ferð með beinu flugi til og frá Akureyrar sé þægindin sem fylgi heimkomunni, að komast heim örskömmu eftir lendingu en sú var ekki raunin í gær.
Skammt er síðan erlent félag hætti við lendingu farþegarvélar á Akureyri, að því er virðist án góðrar ástæðu. Gylfi segir að atvikinu í gærkvöld sé ekki hægt að jafna við þá sögu. Sannarlega hafi verið dimm él yfir Akureyri í gærkvöld og hafi flugmenn þotunnar gert sitt besta til að lenda með því að sveima um 45 mínútur yfir bænum áður en þeir hættu loks við lendingu og flugu til Keflavíkur. Þá var farþegum smalað upp í rútu og komu loks til Akureyrar um sexleytið í morgun, hátt í tíu klukkutímum á eftir áætlun.
Gylfi segir að svo illa hafi viljað til að bjart hafi verið beggja megin Akureyrar í gærkvöld. Þannig hafi ljós á jörðu niðri sést vel í Kristnesi sunnan flugvallarins. Sömu sögu sé að að segja norðan flugvallar í Eyjafirðinum. Gylfi segir að vonbrigði farþega hafi eðlilega orðið töluverð þegar ljóst varð að lent yrði í Keflavík en ekki Akureyri. Hitt sé líka álitamál hvort ekki hefði verið hægt að skella bensíni á þotuna í Keflavík og fljúga aftur norður með farþegana, því éljunum hafi slotað fljótt og hefði verið hægt að lenda á Akureyrar síðar í gærkvöld.
Farþegaþotan var að koma frá Tenerife. Segir Gylfi að þrátt fyrir vandræðin við heimkomuna hafi ferðin verið mjög góð, veðrið óvenju hlýtt miðað við árstíma og allt hafi gengið vel utan lendingarinnar á Akureyri. Upplýsingagjöf hefði þó mátt vera betri.