Mikill samhugur er á Akureyri vegna komu sýrlenskra flóttamanna. Fjöldi fólks hefur boðið fram stuðning sinn við flóttamennina. Var mikil stemmning á fundi í gærkvöld.
Þetta segir Ingibjörg Elín Halldórsdóttir hjá Rauða krossinum. Í færslu á facebook lýsir hún þakklæti að loknum fundinum sem fór fram á Akureyri vegna fyrirhugaðrar komu flóttafólksins norður. Um 100 sjálfboðaliðar mættu á upplýsingafundinn og eftir að fundi lauk skráði Rauði krossinn á þriðja tug stuðningsfjölskyldna sem var töluvert yfir væntingum.
„Við fylltum flestar vaktir í tengslum við móttöku á húsbúnaði,“ segir Ingibjörg Elín. Hún segir að margir tugir einstaklinga hafi skráð sig í önnur tilfallandi verkefni. Þar megi nefna standsetningu íbúða sem verði heimili flóttafólksins, gardínur, útvega rúmfatnað og margt fleira.
„Samhugur fólks hér á svæðinu er eitthvað afl sem er svo ótrúlegt og fallegt að það gjörsamlega bræddi hjartað mitt. Vá er orð kvöldsins,“ skrifar fulltrúi Rauða krossins á facebook.
Í Kvikunni, fréttaskýringaþætti Hringbrautar á dögunum, kom fram að ekki væri enn búið að ganga frá greiðslum milli ríkisins og þeirra þriggja sveitarfélaga sem fyrirhugað var að tækju við flóttafólki, Akureyri, Hafnarfirði og Kópavogi. Ekki er enn búið að leysa þann hnút að því er fram kom í fréttum Rúv í vikunni.