Gréta Gunnarsdóttir sendiherra, sem starfaði sem yfirmaður hjá flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna í Palestínu, UNRWA, segir Ísreala ekki geta einhliða breytt því friðarferli sem er við lýði. Tveggja ríkja lausn sé enn eina raunhæfa leiðin í stöðunni.
Gréta var gestur Heimsljóss þar sem rætt var um málefni Palestínu og ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Ísland var fyrsta Evrópuríkið til að viðurkenna sjálfstæði Palestínu á alþjóðavettvangi.
Gréta segir að þó Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hafi hafnað tveggja ríkja lausn í nýafstöðnum kosingum þar í landi veiti það honum ekki leyfi til að breyta þeim friðarsamningum sem hafa verið í forgrunni um langt skeið. Þetta sýni þó mikilvægi þess að hraða málum og vinna að pólítískri lausn deilunnar sem fyrst.
Heimsljós er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 21:30. Horfðu á brot út þættinum með því að smella hér: