Lífstíll fólks er að breytast mjög mikið og þess vegna er mikilvægt að hlusta á þær tillögur sem ungt fólk er að leggja til í húsnæðismálum, en ákveðin fastheldni og íhaldsemi stendur framþróun þar fyrir þrifum.
Það ætti þó ekki aðeins að hugsa um lausnir í húsnæðismálum fyrir ungt fólk, því almennt er lífstíll að breytast það mikið að fólk vill minna og hagnýtara húsnæði, en leggur síðan áherslu á að geta leyft sér aðra hluti, s.s. ferðalög eða annað sem fólk vill gera til að njóta lífsins.
Þetta er meðal þess sem kom fram í þættinum Afsal sem sýndur var á Hringbraut í vikunni. Gestir þáttarins voru Ásdís Valsdóttir og Guðrún Antonsdóttir, löggiltir fasteignasalar. Þær sögðu ýmsa góða hluti vera að gerast nú þegar, sem liðka fyrir húsnæðiskaupum en margt þyrfti að huga að enn. Báðar sögðust þær vera spenntar fyrir því að ungt fólk í stjórnmálum færi að stíga meira fram, með tillögur um hvað skyldi gera í húsnæðismálum. Þar þyrfti að hugsa breytingar út fyrir þann ramma sem verið hefur og á meiri byltingarkenndan hátt, sem unga fólkið væri líklegast til að gera.
Ásdís líkti umræðunni við kerfishönnun. Bestu kerfin eru þróuð í samvinnu við notendur, en ekki af framleiðendum sem síðan kenna notendum á kerfið. Helst þyrfti að koma unga fólkinu inn í þær nefndir eða starfshópa sem vinna að breytingum á húsnæðismálum, því þetta væru kynslóðirnar sem væru að taka við og hefðu mest um það að segja, hvernig framtíðin ætti að líta út. Á Norðurlöndunum er meðalfermetrastærð íbúða til dæmis 60 fermetrar, en hér á landi 80 fermetrar. Ungt fólk er að tala um að það eigi að byggja smærri og ódýrari íbúðir og ef þeirra mat er það að eignir eru of stórar í dag, þá á einmitt að hlusta á þær raddir. Meira um þetta í þættinum Afsal, sem Rakel Sveinsdóttir þáttastýrir.
Afsal er á dagskrá á fimmtudagskvöldum og sýnilegur á tímaflakkara Hringbrautar frá fimmtudögum til þriðjudags.