„Hefði ekki verið eins gott að fara upp á marglyttu og að fást við saklausa þjóhnappa hans?“
Svo spyr Guðbergur Bergsson rithöfundur í pistli í DV í dag þar sem hann fjallar um opinskáa frásögn kollegans, Hallgríms Helgasonar, sem í blaðaviðtölum og í nýrri bók ræðir nauðgun sem Hallgrímur varð fyrir að hálfu karlmanns í útlöndum.
Guðbergur er þekktur fyrir tómhyggju og satírískan stíl og er þekktur fyrir að ögra lesendum. Af lestri ummæla á samfélagsmiðlum liggur þó fyrir að jafnvel fyrrverandi aðdáendur Guðbergs telja hann hafa farið langt yfir strikið með skrifum sínum í DV í dag.
Stundin fjallar um pistilinn og hefur eftirfarandi eftir Gubergi:
„Nú kemur hver stórfréttin á fætur annarri í jólabókaflóðinu: Hallgrími Helgasyni rithöfundi kvað hafa verið nauðgað, í nýrri bók, með þeim afleiðingum að við samningu hennar hafi einskonar sveskjusteinn (kannski í líkingu við steinbarn Laxness?) gengið niður af honum úr sálinni eða földu móðurlífi í einskonar hommaskáp í skrokknum,“ skrifar Guðbergur meðal annars. Þá segir hann Hallgrím enga ljósmyndafælu heldur það sem í útlöndum sé kallað myndatottara, „svo þjóðin hefur drukkið í sig útlit hans. Þess vegna sagði kvikindi: Hvaða kynvillingur hefur haft svona slæman smekk? Hefði ekki verið eins gott að fara upp á marglyttu og að fást við saklausa þjóhnappa hans? Líklega mun hið sanna seint koma í ljós. Til þess þyrfti skáldið, að eigin sögn, að skrifa þúsund blaðsíðna bók með brennandi efni við 1000 gráðu skapandi hita. En þjóðin með sína heimsfrægu samúð spyr: Hví kærir maðurinn þetta ekki? Það er ekki of seint. Honum yrði tekið opnum örmum í Konukoti þar sem hann gæti „unnið í sjálfum sér“ eins og margir og margar til að endurfæðast síðan með „miklum létti“.“
Halldór Auðar Svansson, lykilmaður hjá Pírötum, segir í færslu á facebook: „Þessi skrif Guðbergs eru hrein viðurstyggð. Það er ekki oft sem fólki tekst að útmála sig sem algjöra ómerkinga í mínum augum en honum hefur tekist það núna. Álit mitt á honum og hans skoðunum er núna ekkert. Farðu fjandans til Guðbergur og taktu þetta ógeðslega og mannhatandi hugarfar þitt með þér.“
Stundin hefur eftir ráðgjafa á Stígamótum að umræðan um kynferðisofbeldi gegn körlum sé skammt á veg komin en öll umræða sé tið góðs.